Ískraft
Þekktar Vörur

Sagan


ÍSKRAFT var stofnað af Herborgu Halldórsdóttur og Hreggviði Þorgeirssyni í nóvember 1975.

Í upphafi einskorðaði fyrirtækið sig við útvegun raflagnaefnis til rafveitna, ekki síst til RARIK -
sem þá vann að lagningu Byggðalínu.
ÍSKRAFT útvegaði í þetta umfangsmikla verkefni, tengivirki, línuvír, einangra, spennubreyta og margt fleira.

Árið 1980 jukust umsvifin á hinum almenna rafiðnaðarmarkaði og hefur síðan verið unnið stöðugt að útvíkkun starfseminnar á því sviði.

Í árslok 1987 sameinuðust ÍSKRAFT og Ásel hf. í Garðabæ og jókst þá vöruúrvalið á sviði töflubúnaðar mjög.

ÍSKRAFT var í upphafi rekið að Sólheimum 29-33 í Reykjavík en árið 1997 keypti ÍSKRAFT húsnæði að Smiðjuvegi 5 í Kópavogi þar sem reksturinn er í dag.
Árið 1999 var stofnað útibú á Akureyri sem er til húsa að Hjalteyrargötu 4.
Þar eru 4 starfsmenn og þjóna Norðurlandi frá Sauðárkróki til Húsavíkur.

Í október árið 1999 keypti Húsasmiðjan ÍSKRAFT og hefur sú breyting eflt starfsemina enn frekar með auknu vöruúrvali og þjónustu við viðskiptavini okkar.

Í júní árið 2000 var starfsemi perudeildar H.G.Guðjónssonar ehf. sameinuð ÍSKRAFT og í ársbyrjun 2001 voru lampadeildir Árvíkur ehf. og Seguls ehf. sameinaðar ÍSKRAFT.

Þessar breytingar juku stórlega úrval ljósapera, inni- og útilampa, ljóskastara ásamt siglingaljósum, leitarkösturum og skipalömpum. Starfsemin hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og höfum við ríflega 2800m² til umráða í Kópavogi og starfsmenn í Kópavogi eru 26 talsins.

Í júní 2006 var opnað útibú á Egilstöðum og eru starfsmenn þar 2.
Eins og viðskiptamenn okkar vita er í starfsliði ÍSKRAFT einvala lið af vel menntuðum fagmönnum og tæknimönnum.

Leitast þeir við að veita sem besta þjónustu á hverjum tíma.
Þekking og reynsla þeirra nýtist jafnt til sjós og lands.